lifið er leikur einn

JENNÝ svansdóttir

14.10.2007 12:16:07 / jenny

orðin sautján!!


Sem betur fer er ég loksins komin með bílpróf, búinn að bíða frekar lengi eftir þessum degi, ég semsagt tók bílprófið mánudaginn 8.okt svo byrjarði ég að keyra strax á afmælisdaginn minn 11.okt,, ég játa það að ég skrópaði í söngsal til þess að fara til sýslumannsins og fá ökuskirteinið mitt :S Svo var ég svo spennt að keyra að ég drap á bílnum hennar Evu á ljósunum :$ frekar vandræðalegt,, Enn ég lét það svosem ekkert á mig fá og keyrði heim á Dalvík með fullann bíl af fólki.. !
Ég hef verið að hugsa um að fá mér bil því mér finnst það hálf lamað að vera kominn með bilpróf og hafa engan bil, þetta væri kanski annað mál ef famalian ætti heima á ak þá gæti ég alltaf bara tekið bílinn hjá mor og far.... enn ég mun lika flytja af landinu eftir minna en ár svo kanski tekur það sig ekkert, enn hver veit.. kanski mun Jenný eignast fallegan litinn bíl eftir allt saman, þó draumurinn væri auðvitað að fá sér bara land rover:lol:
annars er ég komin á fullt í þessum skóla, 2.H er alls ekkert auðveldur..! enn ég vona að ég komist nú í gengum þetta, það er lika brjálað að gera hjá mér í ræktinni, venjulegur dagur í lífi minu er alls ekkert spennandi ;
Vakna-Skóli-Ræktin-heimanám-kvöldmatur-heimanám-smá pása-sofa!! :|
Ég og Eva drulluðum okkur nefnilega í átak í Átak, keyptum okkur árskort sem kostaði ekki litið, enn það varð lika til þess að þá er maður eflaust duglegri að fara í ræktina..8)
helgarnar minar hafa nú allar farið í það sama bara, fer oftast bara heim og djamma með Dalvíkur skvísunum mínum;)
ohhh ég myndast alltaf svo vel :$

OVER & OUT ..................!

endilega kvitta elskurnar

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 20:15:42 / jenny

aha

..
ákvað að skella inn einu bloggi hérna, ég var að koma frá ak með stelpunum við skelltum okkur í bókakaup, fór með bækur á skiptibóka markað, fékk eiginlega ekkert fyrir þær,.. enn sem betur fer þurfti ég ekki að kaupa það margar bækur.. á samt efti að kaupa nokkrar..!

Ég flyt á morgun en hinn, get varla beðið.. er á fullu að pakka niður, verð að taka mér pásur á milli því ég á heila eilífð af drasli.

Enn við stelpurnar hittumst á Tjörn á laugardaginn hjá henni Björk byrjuðum aðeins að hita uppá laugardeginum því á Sunnudeginum var svo smá stelpuparty hjá henni og svo skelltum við okkur á gangnaballið, sem var klikkað stuð;)
sveita böllin klikka ekki, Stóðréttaballið eftir og svo fer ég með Evu í Laufskálarétt í Skagafirði:D

Annars þá náði ég bóklega bilprófinu í dag, féll nefnilega seinast með 3 í a hluta og 3 í b,, sem er svona næstum því að ná en samt ekki.. svo er það bara nokkrir ökutimar eftir og bílprófið eftir minna en mánuð, eða afmælisdaginn 11.okt, þeir sem vilja halda bilnum óbeygluðum ættu bara að leggja druslunum sinum:klikk:


óþekka kisan min,, á svo eftir að sakna hennar


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 12:06:05 / jenny

Margt að segja frá

Hvar á ég að byrja, jæjja við stelpurnar skelltum okkur í menninga-reisu suður til Reykjavíkur,, þar var verslað, já kortið fékk sko að finna fyrir því, fann liggur við hitalykt af því vegna ofnotkunar..!
* ég held að mér hafi tekist að versla mest af stelpunum,
       
* Eva stóð sig eins og hetja að keyra, þó svo að við keyrðum á móti umferð og svona!!:lol: það var bara skemmtilegt, enda vel smurð Boran hennar Evu.. HAHA

*Sæunn kom og hitti okkur, keyrðum um bæjinn með henni, hún sýndi okkur nýja Poloinn sinn, glæsikerra;)

* fórum i kaffi á Bessastaði, Óli var samt ekki við enn fengum þetta fínasta kaffi..
*keyrðum um Álftanes
*Reyndum að villast eitthvað enn það gerðist ekki..

*Fórum í sveittan IKEA leiðangur, núna á ég eitt stk rollu skinn sem ég ættla að hafa á gólfinu í nýja herberginu;)
*Alexandra ættlar að kaupa kóngarúm handa Prins;) ég hef aldrei séð svona flott hundarúm áður,, gæti svosem keypt svona handa Töru enn hún fattar aldrei að nota svona kattardýradót!
* hitti Haffa minn, elskan mín alltaf svo glaður og sætur..
* Við gistum hjá ömmu germany, svo skemmtileg þessi kona, verst var að hún var veik greyjið..  .. "stelpana vaknaðar bara"
*Fórum út að borða á Ítaliu, Ég, Eva, Alexandra, Andri, Sæunn og Gullý.. Svo kikkti Einar við svona til þess að segja eitt hæ og fá knús..
* átum ótrúlega mikið að ógeðslega óhollum mat..

________________________________________________________________________
Alexandra mín átti afmæli þann 20.ágúst, já litla gullið mitt er orðin 17 ára, og ekki komin með bílpróf, alltaf að fresta þessu greyjið;) við fáum örugglega bara bílprófið sama dag!!
Við Eva komum henni á óvart og keyrðum með hana á ak og gáfum henni tíma í slökunarnudd á Abaco, svo hittumst við allar í pottinum.. okkur til mikilla óánægju kom eitthvað kyntröll(kaldhæðni) og sat með okkur í pottinum,, hahahah!!
 
_______________________________________________________________________
Ég er enn bara að vinna á hótelinu, frekar litið að gera núna, enn ég er bara feginn enda var ég að vinna svo mikið í sumar!!
ég er búinn að sækja um ökuskirteini, ættla að fara í þetta bóklega fyrir skólastart!!
__________________________________________________________________________
'Eg er loksins að fara að flytja aftur á ak, ég mun ekki búa á vistinni, guð sé lof fékk nóg af því í fyrra, þetta var eins og fyrirtæki sem tók endalaust á móti fólki, allan sólahringinn,, enn það er ágætt ég á greyða inni hjá svo mörgum,!!
Ég mun búa hjá Hugrúnu og Ottó(sem er bróðir pabba) þau eiga svo tvo litla stráka..
Ég hef þar sér herbergi og þau búa í nýju, mjög stóru húsi í Klettaborg 11, mjög stutt til Köru, aðeins 2 hús á milli okkar.. ;) ég ættla að reyna að vera flutt inn helgina áður en skólinn byrjar og hitta eitthvað fólk!!
Ég er að fara í 2.H,, hef séð kennaralistann, líst ágætlega á listann...!!
___________________________________________________________________________
Over and Out...!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 18:29:06 / jenny

Hvað um eitt blogg hér !!

Sumarið hefur liðið eins og tímasprengja og það styttist og styttist í skólann ég fór á innuna um daginn og komst af því að ég er í 2.H ;) og er bara mjög sátt við það, og ég hlakka bara ótrúlega mikið til að byrja aftur í skólanum og fá reglu á lífið, ég verð ekki á vistinni eins og í fyrra ég mun búa hjá bróður pabba og konuni hans og tveimur sonum þeirra, þau eiga stórt nýtt hús í klettaborg og það besta er að það eru 2 hús milli min og köru:haha: svo ég bý eiginlega bara hjá köru;)
Um þessar mundir er ég að lesa eins og hestur fyrir bóklega bílprófið, ég ættla að reyna að komast í það á næstunni helst í lok ágúst eða byrjun sept, því ég vill vera búinn með þetta áður en skólinn byrjar:S

enn að örðu við stelpurnar (ég, Alexandra og Eva) gerðum innras heim til Köru um verzló, gistum allar þar fórum á Palla sem var geggjað, og fórum svo á No reqest sem var ekkert verra fórum út að borða á Strikinu og ég sem gerði þessi kjarakaup, vá hvað ég elska misskilning, sagan er þannig að ég pantaði mér humarforrétt einvhern sem átti að koast 1900 kr enn við biðum og biðum eftir mat, svo kom þessi svakalegi réttur örugglega 7-8 humrar,, enn ég át það allt og var frekar södd enda búinn að vera í matarboði rétt áður, svo kom að því að borga þá stóð á visanótunni 4990 ég bara uuu nei þetta messar ekki ég pantaði humar forrétt, enn þá hafði gellan skrifað vitlaust niður og ég fékk 3000kr endurgreiddar..:lol: ánægð.is..!!
eva,alex, ég og kars
FLIPPHÆNURRRRRRRRRRRRRR..................!!!!!!!!!
Á Sunnudeginum bauð mamma hennar Köru okkur upp á lautarferð, við í bakaríið og kláruðum næstum allt brauðið þar og tókum matinn með upp í Kjarnaskóg, sátum svo þar á teppi í sólinni og átum eins og litil svín..:)

Helgin eftir var ekkert síðri, Besti dagur lífs mins.. sjálfur Fiskidagurinn mikli rann upp ég vann eins og þræll á hótelinu, enda hótelið pakkað og ég hafði ekki einu sinni tíma til þess að vera þunn:$ Enn það var bara betra, Karlingur kom og gisti og við skemmtum okkur ótrúlega Sæunn gamla kom hitti hana næstum ekkert:cry: ég fékk mér fullt af fiskisúpum sem smökkuðust bara vel, á fiskideginum sjálfum gekk ég niður á bryggju með mor og ég þessi plokkfisks fan nr1 fór nokkuru sinnum á þann bás og fékk mér :!: svo smakkaði ég annarskonarfisk,
um kvöldin var bara djammað og Einar var með okkur stelpunum, og hann sá rauða bátinn hans pabba sem er bæ þe vei hvítur, já þið sem sáuð bát út á miðri höfn með hvítri seríu þá var þetta báturinn hans pabba og ég skil ekkert hvað hann var að gera þarna:$

Við stelpurnar ættlum svo að skella okkur suður (ég, Eva, Alexandra og Gullý) næstu viku versla og versla..

þetta er gott í bili.. endilega kvittið í skoðanir og sérstaklega ef þið eruð með mér í bekk ég er að rifna úr forvitni, hverjir verða með mér í bekk :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 20:21:56 / jenny

Sveitasælan


Ég hef ættlað að blogga frekar lengi enn eins og ég er þá gerist allt mjög hægt hjá mér :S enn það gerist nú samt ;) Ég er bara á fulla að vinna á hótelinu frá kl 8 til 4 og vinn líka stundum á kvöldin því þá er ég að þjóna!! það er bara mjög fínt ég gerði mig samt að algjöru fífli um daginn ég átti að taka á móti einhverju fólki hjónum og einni stelpu, sem ég gerði og ég talaði ensku allan tímann svo undir lokin byrjaði kom stelpan með spurningu á íslensku..hún skildi þá íslensku fullkomlega.. ég get varla lýst því hvað mér leið kjánalega :lol:

Enn annars þá hafa helgarnar farið í afslöppun og seinustu helgi bauð Binna mér í party á Húsabakka, klikka ekki þessi sveitaparty.. ég, Björk og Binna fórum svo bara á barinn.. Eva kom ekki með þar sem putinn á henni datt næstum af þegar hún var á hestbaki um daginn og það þurfti að sauma greyjið..8| á maður að þora aftur á bak?? ég vil ekki missa puttann minn:!::!:
Ég er að þykjast vera eitthvað dugleg þessa dagana; vakna kl: 5:40 og fer fram í sveit að labba og pirrast á þessum helv. kríum.. alveg þoli ég ekki þessi kvikindi.. gargið í þessu er ógeðslegt.. svo er mér bara yfir höfuð illa við fugla:|
Ég er búinn að bíða eða langa í 2 ár í hárlenginu,, svo um daginn fór ég bara og fékk mér svona lengingar og er kominn með sitt hár niður á bak,, og það finndnasta við þetta er að öllum finnst eins og ég hafi alltaf verið svona og margir taka hreynlega ekki eftir þessum breytingum.. enn þetta er hálfgerðar spennur svo ég get átt þetta að eilífu og tekið þetta úr mér og látið þetta í mig þegar ég vill.. þetta er líka alvöru mannshár.. frekar hrillilegt að hugsa til þess að eflaust er þetta úr einhverrri tælenskri yngismey sem þurfti peninga fyrir froskalöppum í kveldmatinn:lol: Ekki er öll vitleysan eins, eins og amma orðar það nú!!
Í gærkvöldi skrapp ég aftur í sveitaparty (hvað er þetta að verða með mann og sveitaparty) svo er ég , kara eva og alexandra að fara fram í sveit og gista í hjólhýsi.. !!

í þetta skiptið var partyið hjá Tjarnarbóndanum henni Björk, við allar stelpurnar hittumst, það var slúðrað eins og aldrei fyrr,, kanadamaður lét sjá sig og 2 aðrir herramenn.. við fórum svo á barinn þar sem jah maður labbar gjörsamlega inn í The bold and the bautiful þátt.. enn maður tekur víst þátt í þessu rugli.. Kara kom á Dalvik og fekk að fylgjast hér með dalvísku sumardjammi eins og það best gerist og við enduðum nóttina heima hjá Andra þar sem Alexandra vel upp aldna eldaði pasta handa mér köru og evu og elín litla sat bara í sófanum og svaf.. svo komu björk og andri heim og ég sem var alveg að sofna rétt náði að labba heim og var svo mætt í vinnu kl 12 til 5 ....!!
Ég er núna bara að fylgjast með Live Earth í nýja plasma sjónvarpinu okkar,, ég er nefnilega orðin svo græn.. eða það heyrði ég víst um daginn þegar ég fór að væla yfir trjáskógunum sem við eyðum og öllu ruslinu sem við hendum..!!

save the world... call now...  .. er það ekki einhvernveginn svona..!!
ég hef lokið mínu máli.. endilega kommentið..

það koma myndir fljótlega á myndasíðuna eða þegar ég hef lært á netið hérna, náð að tengja tölvuna.. ég er bara því miður tæknifötluð... :S

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 21:20:01 / jenny

Ég vildi, ég væri Pamela í Dallas

Ég hef fullt til þess að blogga um enn það er komin sumarfílingur í mig og þá heng ég voðalega lítið fyrir framan tölvuna..

Enn allvegna þá náði ég öllum prófum, var endalaust ánægð og í gleðivímu yfir að hafa rúllað upp stærðfræðinni og sleppt við upptökupróf því ég féll á seinustu önn, enn ég tók mér tak, var heima hjá ömmu alla helgina fyrir prófið og lærði eins og skepna..!
Svo þá er það 2. bekkur F,G eða H ;)
Við stelpurnar elduðum svo heima hjá Köru, skruppum svo í fínasta party heima hjá henni Höllu, eflaust seinasta skiptið sem við bekkurinn hittumst svona, enda fara sumir í VMA og aðrir halda áfram á aðrar brautir,!! svo ég vil bara hér opinbera þetta langaði að þakka fyrir veturinn krakkar mínir, þið eruð indi ég á eftir að sakna ykkar sárt..!
Svo mun ég ekki búa á vistinni næsta vetur, langar það engann veginn, mun samt ekki keyra á milli það flokkast bara undir dauðadóm.. held ég reyni að finna mér einhvern stað á Akureyri þó það vari bara að búa í litlu tjalda í skólalóðinni, ég myndi þá kanksi komast á forsíðu Muninns:lol:

Ég er svo byrjuð að vinna á Hótelinu, kann bara mjög vel við mig þar, gott að vera laus frá fisknum og ég get sagt honum það þessum fisk að ég kem aldrei til hans aftur.. ALDREI :S
Ég held ég taki mér n+ú lítið frí í sumar ég ættla bara að ná að skemmta mér um helgar, við stelpurnar höfum reyndar planað nokkrar útihátíðir og sumarbústaðaferðir enn það verður bara að koma í ljós hvað muni rætast úr því..

Ég hélt upp á þessa helgi með ágætis stæl, Bjarni Fannar bauðst til þess að vera driver fyrir mig Alexöndru og Evu og Arnar var líka með og við fórum á þetta rallerí eða hvað sem var um að vera þarna á KA vellinum, nenntum svo ekkert að standa þarna svo við löbbuðum heim til pabba Evu og helltum í okkur þar, svo fórum við bara niður í bæ, hittum fólk á förnum vegi og vorum svo komnar heim því ákveðinn maður fór bara heim á undan okkur en Andri bjargaði okkur með far, svo komumst við ekki inn á Ak í gær því ég var að vinna til kl hálf 12 og fann ekkert far..:S Í dag fórum við svo á þessa bílasýningu með Andra og Ingó við vorum nú mjög fljótar að kíkka á þessa bíla svo við fórum bara á undan þeim, röltuðum á Dominos og sátum þar úti og borðuðum pizzu..

þetta eru nedalokin hjá Pamelu

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 10:38:58 / jenny

Prófatíð

Ekkert blogg fyrr en í sumar !!! kærar kveðjur; Jenný sem lærir eins og ugla :S

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 15:35:16 / jenny

Hopp hopp

Þegar það er byrjað að hóta manni lífláti yfir þessu bloggleysi, verður maður nú að gera eitthvað í málunum:lol: Það er allavegna allt gott að frétta hjá mér, ég tek lífinu óskaplega rólega miða við að það er minna en vika í próf, ég mætti bara hress í skólan á mánudaginn, bekkurinn slapp bara vel þar sem "engin" náttúrufræði var og við Kara vorum bara eins og ónýtar döðlur upp á vist að gera ekki neitt..!! á Þriðjudaginn var farið í þessa náttúrufræðiferð um Mývatn sem bara heppnaðist ótrúlega vel, ég drullaðist upp þetta fjall og í raun skíðaði bara niður það, sandurinn var svo skrítinn, svo fórum við í kröflu virkjun og allir fengu sér drullu í framan(náttúrumaska) og sumir létu þetta í hárið á sér:| urðu rauðhærðir og fínir!!
Ég fór svo heim eftir skóla í gær, Eva María keyrði eins og brjálæðingur á víkina og um kvöldið hoppuðum við eins og 5 ára krakkar á trammpólíninu hennar, ég fór líka bara snemma heim enda uppgefin og í dag er ég að deyja í öxlunum og maganum :lol:
Enn ég lét það svosem ekkert hafa nein áhrif á mig því ég, Elín, Björk og Alexandra fórum niður í skóla (Dalvíkurskóla) átum þar eins og fílar út af þessar árlegu vorhátíð og fórum svo smá á rúntinn og svo heim til Alexöndru og hoppuðum á trammpólíninu hennar, Alexandra sem er loksins búinn að læra hvernig maður á að hoppa hehe:lol: það þarf nefnilega að spinna svo maður komist upp, svo vorum við að skjóta hvor annari, ég hélt á tímabili að ég færi yfir öryggisnetið..8| maður á jú víst alltaf að geta funndið krakkann í sér;) svoo væri nú ekki leiðinlegt að eiga trammpólín rúm, það er eflaust amrgt skemmtilegt hægt að gera á þeim;)
Ég verð svo bara á vistinni um helgina,ættla að reyna að læra eitthvað og kanksi lesa þessar skrilljóna náttúrufræðiglósur sem ég á :$  ættla nú samt ekkert að djamma held ég, ég samt auglýsi hér með einhverjum sem vill koma með mér í bio á Goal II !?!

Það er ekkert fleyra í bili, svo ég segi bara bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 14:04:19 / jenny

Best friends, always stick together


Ég er stödd heima hjá mér í þessu augnabliki, á að vera að læra undir stærðfræðipróf enn ákvað að skreppa smá í tölvuna;)
NatureMeaningful
Við stöllur fórum með Andra á Ytri- Vík um 10 leitið á föstudeginum, við mættum fyrstar á svæðið, reyndar var party þarna við hliðina á.. stelpur hlaupandi um á bikiníum blind fullar,, hehe.. það er alltaf hægt að hlæja af svona fullu fólki þegar maður hefur vitið:klikk:
Svo komu fyrstu I-ingarnir og fyrst héldum við bara að enginn myndi koma og við vinkonurnar orðnar ágætar, svo komu Bjarni og þeir.. tóku klikkaðan dans og létu svo ekki sjá sig fyrr en mun seinna um nóttina:!: og á tímabili var varla hægt að labba um húsið, það var svo mikið af fólki!
-- Eva María náði á slasa sig og getur ei gengið í dag:lol:
-- Alexandra eignaðist góða vinkonu og fór og fékk sér dýrindis köku og kalda mjólk:P
-- Guðrún og Binna létu sjá sig með séra Jónasi !"!
-- það má segja að heppninn hafi verið með mér þetta kvöldið, ég sem var auðvitað á háum hælum, ekki í ofur góðu ástandi enn samt datt ég Aldrei þetta kvöld þó ferðir mínar upp og niður stigana voru þó nokkuð margar8)
-- Bekkjarfélagar mínir létu nú auðvitað sjá sig, þvílíkur djamm bekkur;)
-- Morguninn eftir var sá versti í svona eitt og hálft ár myndi ég segja.

Ég og Eva löbbuðum, eða Eva skreið áfram með mér á video leiguna og við tókum okkur mynd og átum þvílíkt af nammi að ég held að rassinn á mér verði á stærð við breið-þvotu eftir þennann mánuð, því ég hef eiginlega lagst í dvala í sambandi við íþróttir:$         
        



---- Jenný Svansdóttir

Er svo júró party næstu helgi 8| ?


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:06:36 / jenny

2.mai.. merkis dagur..!

Já ég var einu sinni í denn, mikil Beckham fan og bara vissi ýmislegt um fótbolta (sem ég veit svo ekkert um í dag), og ég veit nú heilmikið um þann mann enn allavegna þá á Davið J R Beckham afmæli í dag, fæddur ´75 í lundúnum, svo á líka Snati hundurinn hennar Evu afmæli í dag hann er samt 10 ára eða 70 ára í hundaárum;) varð bara að koma þessu á til skila ;) Annars þá var menningarferðina bara helv, fín við stelpurnar versluðum , fórum til Sæunnar í heimsókn hittum frábæru ömmu hennnar Evu, þvílikt sem ein mannvera getur verið finndinn,, langt síðan ég hef hlegið svona mikið, ég gat varla andað:) Fórum fíluferð niður á Laugaveg, þar sem rokk og rósir var lokuð:( Við héldum svo smá hitting í íbúðini sem frændi Alexöndru á sem var svoo næs að lána okkur íbúðina sína!! Svo fer að styttast í próf, ég er búinn að redda mér aukatími í stæ, þar sem ég brilleraði ekkert í 102, enn ég held ég eigi nú eftir að meika það i 202 .. eða það vona ég allavegna..! við vinkonurnar erum búnar að vera að plana heljarinnar djamm sumar, stóri hópurinn er búið að plana á káta daga á þórshöfn eða hvað sem það nú hét, hef aldrei farið eitthvað austur á land svo ég veit ekkert..! ég fer bara út í óvissuna með stelpunum, svo er að sumarbústaða ferð, útileiga að hætti Evu Maríu (ég sem HATA tjöld strax byrjuð að svitna yfir þessari ferð), eflaust einhver Bikkjuferð, afsakið Hestaferð.. svo má lengi telja upp, enn það þýðir ekkert að hugsa um sumarið.. ég ættla bara að njóta þess að vera í prófum og seinasta mánuðin í 1.bekk ;) jæjja ég ættla ekki að bulla meira, enn ég lét inn þessa óþekku mydnir, þær fara sumar og komu aldrei aftur enn kanksi sjáið þið myndur á myndasíðunni minni .. úr menningaferðinni ;) Jenný.. ég er hætt að skrifa eftir nafnið mitt,, það þykirf of dónalegt :S

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 15:37:58 / jenny

Menningarferð MA

Eftir skóla á miðvikudaginn fór ég heim og gerði nákvæmlega ekki neitt, eða reyndar eldaði ég, já ótrúlegt en satt og ég klúðraði sósunni, hún bara vildi ekki þykkjast svo það var bara svona mjólkursull með kjúklingnum! greinilega fékk ég ekki eldamennskuna frá móður minni því ég kann varla að sjóða vatn8|
Svo fór ég með Elínu, Alexöndru og Evu í skólan á föstudaginn. Bekkurinn okkar er með 2 lið í gettu betur keppninni innan skólans og vita menn ég er í öðru liðinu, ég geri bara mitt besta:S Svo náði hann elsku Hafliði minn bílprófinu, enn og aftur til hamingju með það og afmælið sjálft..
Eftir skóla fór ég og Eva í myndatöku í Dagsljósi og Kara þaut með okkur, svo kom mamma hennar og náði í okkur og við fórum heim og um kvöldið gat ég gjörsamlega ekki haldið augunum á mér opnum, svo Gulli skutlaði mér bara heim..!
í gær fór ég auðvitað í ræktina, ég gæti flutt þangað mér líður svo vel þar..! svo fórum við Eva að vinna á hótelinu um kvöldið, við áttum að þjóna á borð.. Þetta var fyrsta skiptið hjá mér og ég náði á missi humar í gólfið:lol: og Eva braut tvö rauðvínsglös:P
Enn svo fengum við að borða það sem eftir var, fengum t.d. þessa dýrindis ostasúkkulaði köku og ég fæ ennþá vatn í munnun þegar ég hugsa um hana;)

eigum við ekki að skella okkur ;)

Næstu helgi er svo menningaferð MA og við stöllur ættlum okkur að fara og versla upp fyrir haus, kikkum svo auðvitað á Sæunni okkar og litlu loðnu ömmu börnin hennar:haha: anskotans Pravda þurfti nú að brenna, svo maður fer nú ekki mikið þangað!!
Við erum ekki enn búnar að ákveða hvort við gistum í MR eða hjá einhverjum enn þetta kemur örugglega allt í ljós í vikunni,, ..!!

over and out....


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 15:46:19 / jenny

girls night

Ég loksins drattaðist í skólann eftir að hafa verið veik heima í 5 daga og fór ekkert út úr húsi, ég missti meira að segja af Palla í Sjallanum :S og þessi fallega 100% mæting mín er víst orðin 99%, má segja svartur dagur í sögu skólagöngu minnar.. nei nei,, ekkert svona proffatal, enn annars þá er Sæunn dóttir Þóris að koma hérna norður um helgina, nánar tiltekið á morgun. Ég og Eva höfum ákveðið að hafa girls night á vistinni, fyrir þá sem vilja koma er það að sjálfsögðu room 1220;) við tökum með ánægju á móti boðflennum:lol:
Það er semsagt söngvakeppni framhaldsskólana hér fyrir norðan og svo ball á eftir með Palla, svo ég þarf ekki að grenja lengur og svo er einhver hljómsveit sem ég veit ekkert um nema að hún heitir Buff..! 

Svo það er bara klikkuð helgi framundan, og við stelpurnar munum svo sannarlega sletta úr klaufunum eins og maðurinn góði sagði:haha:



 OVER and OUT 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:33:49 / jenny

Hey lads

Ég var að koma heim úr vinunni, búinn að vinna í 9 klst og er bara heima að fá mér harðfisk með miklu smjöri, eins og það gerist best:D
Páskafríið er bara búið að vera mjög fínt þó það sé nú varla hálfnað, ég slappaði nú bara af á föstudaginn, enn á Laugadaginn plataði Eva mig með sér út í hesthús og við létum hrossin út í gerði, mokuðum og skelltum okkur svo á bak fórum ríðandi með ánni og svo upp í fjall, og Trítill datt 2x fram fyrir sig og ég fór 4x í lost, ég er greynilega ekki í hestaformi:S verð að bæta úr því, enda er ég líka að drepast í klofinu, með strengi í innanverðum lærunum eftir að sitja á hestinum.. :| .. svo um kvöldið fórum við í ljós og ég fékk nú bara góðan lit:haha: og það sást varla framan í andlitið á Evu því hún var svo frekknótt hehe...! svo skelltum við okkur á rúntin með Elínu og Björk og stefnan var á Ak.. svosem ekkert meira um að vera þar heldur en á Dalvík svo var ég bara farin snemma heim og las bók, litla nördið8)
Ég fór svo og vann á hotelinu eitthvað og gerði ekki neitt á Sunnudaginn!, eða horði á Bridget Jones (the edge of reason) og Goal, mér bregður alltaf jafn mikið þegar Beckham kemur fram, sakna þess líka að æfa ekki fótbolta ennþá þegar ég horfi á þessa mynd.:!: 
Mánudagurinn var bara vinna og vinna, hélt gjörsamleg aað ég myndi rotna enn ég verð samt örugglega að vinna á morgun og á fimmtudaginn, svo það er í raun ekekrt páskafrí hjá mér strax,,
Mamma og Pabbi og systur mínar eru farin suður svo ég og Gulli erum bara ein heima og kanínan og köturinn auðvitað líka, það kalla ég sko afslöppun :P 
ég ættla ekki að rugla hérna meira, verið bara dugleg að kommenta elskurnar;)


Monney Penny ..


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 19:30:45 / jenny

helgarkvitt


--Ég ættla að byrja að óska Sæunni til hamingju með  "ömmubörnin" , Sæunn mín þú ert manneskja dagsins fyrir það eina að taka á móti 5 hvolpum, ekkert smá ánægð með þig:haha:

--Ég og Eva beiluðum á djamminu um helgina, við fórum bara á rúntinn hittum Sigga og Bjarna, sem var orðinn ágætur eða mjög góður,, hehe :lol:

--Ég las Dust í dag og hélt ég myndi bara deyja, þetta er örugglega ein ömurlegasta bók sem skrifuð hefur verið, allavegna sofnaði ég örugglega svona 5x :S

--Ég og mamma erum að fara í agarlegan dekurdag á föstudaginn, báðar að fara í klippingu og litun og ættlum svo að fara og láta stjana við húðina okkar og ættlum svo að enda þetta á góðum kveldverði:P

--Ég var mjög löt um helgina, fór ekkert í ræktina..:|


--Ég, Eva, Björk og Alexandra og örugglega fleiri stelpur erum að fara á Sálina í Sjallanum næstu helgi, ekki verður það leiðinlegt, enda kunnum við svo sannarlega að skemmta okkur saman;)


--Það eru c.a. 2 vikur í páskafrí, ættli ég vinni ekki á Hótel Sóley þar sem ég er líka búinn að fá vinnu í sumar... þá verð ég svona
MAID IN "MANHATTAN"-> (DALVÍK) , klikkað sko ekkert Krækir aftur takk fyrir,, jú jú ég átti svosem ágætis stundir þar, mjög gaman að vinna með stelpunum.. :)

--Jæjja ættli ég fari ekki a skella mér inn á ak og takast á við nýja skóla viku :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 14:44:11 / jenny

Brandari dagsinz

Góðan og blessaðann daginn, elskurnar,, ég er bara að taka því óskaplega rólega þessa dagna þar sem þessi vika í skólanum býður nú eignilega bara upp á það.. já fyrst þetta Ratatoskur, ég fór á fyrirlestur hjá Alþjóðastofunni, og mál fjölmiðla á ísl, og besti fyrirlesturinn var hjá AFS.. já ég er semsagt búinn að vera hugsa um að fara bara í eitt ár, enn þetta er auðvitað stór ákvörðun og margar spurningar sem ég þarf að spyrja sjálfa mig, enn þetta er búið að vera í hausnum á mér allt of lengi og núna verð ég að ákveða mig og leggja þetta undir mor og far:D Annars þá kom Siggi og náði í okkur stelpurnar, já kappinn eins og best er að kallann var að koma af sjó og fer víst bara strax aftur á Sunnudaginn,, enn hann má nú eiga það að hafa farið með okkur á Bakaríið við Brúnna.. Alltaf jafn gaman að slúðra með Sigga hehe.. Annars þá átti ég að vera búinn kl 4 í skólanum í dag en við erum búinn að vera svo dugleg svo við fórum bara fyrr, svo spjallaði ég smá við hana Köru mína þegar ég fór út og tók eftir þessum hærðilgu marblettum á henni, hún sagði já þetta kemur þegar einhver fer með puttann í mann á handboltaæfingu.. já auðvitað sagði ég ; þá bara já er þá alltaf bara einhver að putta þig :S hehe já sagði Kara!!!, svo litum við á hvor aðra og bara, þetta var nú ekki fallega sagt hehehe.. ;) og enginn í bekknum skildi afhvjeru við grenjuðum úr hlátri.. :S enn ég ættla ekki að rugla meira hérna.. jen svan

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan
Klukkan
Myndasíðan mín